KóðunVINVerkefniAukin drægniUm migHafa samband
IS EN
Svartur BMW M5 — Bílakóðun
Hafnarfjörður · BMW, MINI og fleiri

Láttu BMW-inn gera meira

Kóðun, uppfærslur, bilanagreining og endurforritun fyrir BMW, MINI og fleiri. Ég opna falda eiginleika og bæti við þægindum og virkni sem hægt er að virkja.

Sérsvið
BMW & MINI
Kerfi
iDrive 4 · 5 · 6
Bílalínur
F- & G-serían
Staðsetning
Hafnarfjörður
Ég þjónusta BMWMINIAudiVWŠkodaVolvo
Þjónusta

Allt sem hægt er að gera fyrir bílinn, á einum stað

Frá einföldum þægindakóðunum upp í fullar kerfisuppfærslur. Hér er brot af því sem ég geri daglega.

Kóðun & sérstillingar

Virkja falda eiginleika: Video in Motion, ljósastillingar, þægindaföll, DSC fyrir M-línu, HUD leiðsögn og tugi annarra kóðana fyrir F- og G-línuna.

Þráðlaust CarPlay & Android Auto

Breyti verksmiðju-CarPlay í þráðlaust, eða set það upp þar sem það vantar alveg. Stöðug tenging með fjórir-í-einum Android 11 einingu.

iDrive uppfærslur

Uppfæri NBTevo iDrive 5 í iDrive 6, bæti við WiFi loftneti og virkja CarPlay á eldri kerfum sem studdu það ekki áður.

Aukin drægni — hybrid

Aflæsi rafhlöðuhugbúnaði á US/Canada bílum yfir í Evrópustillingar og næ fram drægni sem verksmiðjan læsti, allt að ~50% meira rafmagn.

Kort & leiðsögn

Set inn nýjustu Evrópukortin, þar sem Ísland er innifalið, ásamt umferðaskiltanema (SLI) og leiðsögn beint í HUD-skjáinn.

Bilanagreining & endurforritun

Les og laga villur, endurforrita stýrieiningar og uppfæri hugbúnað. Einnig fyrir Audi, VW, Škoda og Volvo.

Raunverulegt dæmi · BMW X5 45e
36 km 53 km
+47% rafdrægni · engin vélbúnaðarbreyting
Áður · 36 km
Eftir · 53 km

Meiri drægni úr sömu rafhlöðu

Bílar sem fluttir eru inn frá Bandaríkjunum og Kanada nýta rafhlöðuna minna vegna ábyrgðarskilmála þar. Ég færi stillingarnar yfir á Evrópumarkað og næ fram þeirri drægni sem býr í rafhlöðunni.

Á við BMW X5 45e, 530e og fleiri tengiltvinnbíla. Engin íhlutun í vélbúnað, aðeins hugbúnaður.

BMW eDrive 53 km
Verkefni

Nýleg verk úr vinnustofunni

Hér eru nokkur dæmi af mörgum.

Af hverju kóðun

Bíllinn þinn getur meira en þú heldur

Nútíma BMW felur tugi eiginleika, læsta eftir markaði eða útgáfu. Ég virkja þá á öruggan hátt með réttum búnaði og reynslu.

  • Öruggt og afturkræftAllar breytingar eru skjalfestar og hægt að setja í samt lag.
  • Réttur búnaðurGreiningarbúnaður sem er gerður fyrir BMW, MINI og fleiri vörumerki.
  • Staðbundið fyrir ÍslandEvrópukort með Íslandi, leiðsögn og stillingar miðaðar að íslenskum aðstæðum.

Til í að gera meira úr bílnum þínum?

Sendu mér skilaboð með árgerð og því sem þig langar að gera. Ég svara fljótt.