KóðunVINVerkefniAukin drægniUm migHafa samband
IS EN
Um mig

Maðurinn á bak við Bílakóðun

Ég heiti Helgi Rúnar, flugvirki að mennt, og rek Bílakóðun.

Ég hef unnið árum saman við viðhald og bilanagreiningu á flugvélum, þar sem allt er unnið eftir ströngum stöðlum.

Nútíma BMW er í raun samsafn af tölvum. Reynslan úr fluginu, ásamt tæknimenntun og reynslu af tölvu- og netkerfum, nýtist því beint við kóðun. Hvert verk vinn ég sjálfur með réttum greiningarbúnaði.

Nútíma bílar fela fjölda eiginleika sem eru læstir frá verksmiðju, og oft má bæta við þægindum og virkni sem vantar, svo þú fáir meira út úr bílnum sem þú átt.

  • Öruggt og afturkræft — Allar breytingar eru skjalfestar og hægt að setja í samt lag.
  • Réttur búnaður — Greiningarbúnaður sem er gerður fyrir BMW, MINI og fleiri vörumerki.
  • Staðbundið fyrir Ísland — Evrópukort með Íslandi, leiðsögn og stillingar miðaðar að íslenskum aðstæðum.
Helgi Rúnar HR
Helgi Rúnar
Flugvirki · Eigandi Bílakóðun
BMW innrétting með iDrive — kóðun og bilanagreining hjá Bílakóðun
Ég þjónusta BMWMINIAudiVWŠkodaVolvo

Sendu mér línu

Skrifaðu mér með árgerð og því sem þig langar að gera. Ég svara fljótt.